27.11.03

Prinsinn minn 

Hér er mynd af prinsinum mínum


26.11.03

Próf og Prófskrekkur 

Jæja þá fara að koma próf og því fylgir mikill prófskrekkur. Vinkonur mínar voru farnar að hafa áhyggjur af mér og sögðu mér að taka róandi hmmm. Kannski finnst þeim ég vera eitthv keys. En þið hin sem vitið ekki af keysinu þá ætla ég að taka mér frí frá msn þangað til 12 des. Þangað til segji ég bara gúdd lökk gæs og ég kem sterk inn í jólafríinu og þá er hægt að spjalla og spjalla og spjalla enn meir......

Ég held að ég sé að sigla inn í smá jólafíling og ætla að setja jólaljós í gluggana fyrir prinsana mína um helgina. Svo tekur próflestur við svobara Addíós amigos.

20.11.03

Í tíma!! 

Endalaus vinna framundan. Það má með sanni segja að það er mikið að gera þessa dagana. Íslenskuverkefni, 2 vefsíður, myndlistarverkefni og ég tala nú ekki um að blogga oh mæ gad.
En nóg um það ég sit núna í tíma í skólanum. Saumaklúbburinn minn er líka með bloggsíðu sem okkur finnst alveg brillíant. Þar sem nokkrar eru í námi erlendis er gott að geta fylgst með hvor annarri.

14.11.03

Veit ekki hva.... 

Sæl og blessuð öll sömul!!
ÉG gjörsamlega veit ekki hva ég ætti svo sem að skrifa hér! ÉG var að horfa á Idolið núna áðan og fannst bara skemmtilegt ég hefði nú viljað sjá Jón fara áfram annars var ég sátt við úrslitin hefð mátt vera 3 sem hefðu komist áfram. Á morgun er ég að fara á árshátið með vinkonu minni. Það verður svaka stuð allavega skemmtum við okkur vel í fyrra og ætlum okkur að endurtaka þá skemmtun. GÓ GIRLS
Svo í gær festist ég við batsch þetta er ekkert smá pínlegt en samt finnst mér gaman að glápa eins og eldgömul sápa. Ég er svo forvitin manneskja að´ég fór inn á netið og kíkti í pakkann hjá Andrew og veit hverja hann velur hí hí Viljið þið vita það ??? Hann velur XXX só sorrý en ég vil ekki segja ykkur það. Það á ekki að kíkja í pakkana þá er ekkert gaman að þessu lengur......
nat nat

9.11.03

Siðfræði  

Nú í þessum töluðu orðum er ég að lesa yfir siðfræði verkefni sem við eigum að flytja í fyrramálið. Verkefnið fjallar um Jafnrétti til náms. Við erum búnar að vera mikið saman síðustu daga að klára. Svo á morgun byrjum við á vefsíðu sem er verkefni í námskeiðinu Upplýsingartækni og skólastarf 2003.

Nóg í bili nat nat

nóg að gera  

Langt síðan síðast kæru vinir. Þið sem eruð mér náin biðst ég innilegar afsökunar á því hvað ég hef vanrækt ykkur :*

Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér í skólanum. Endalus verkefni og tíminn flýgur áfram. Stundum þyrfti ég lengri sólarhring!! Þið sem eigið uppskrift af því endilega gefa mér hana. Það er rúmur mánuður í jólafrí þ.e ég er búin í prófum þann 12. Þá ætla ég sko að njóta þess að vera með familíunni minni. Í síðustu viku fór ég í afm hjá Mömmu hennar Teddu skólasystur minnar. Það var mjög gaman fullt af skemmtilegu fólki sem maður hefur ekki hitt lengi þar á meðal litlu systir hennar sem er mikil vinkona mín. Við ákváðum þar að fara að hittast oftar sem vonandi við stöndum við.

30.10.03

Ein önnur helgin  

Þetta er alveg með ólíkindum það eru endalausar helgar. Ein helgi er varla búin þá er hin að byrja. Þetta þýðir það að það eru að koma PRÓF!!! Þessi önn er búin að vera svo fljót að líða. Ef tíminn líður þá...... eldist maður er það ekki annars?? Miklar hugleiðingar í gangi hjá mér þessa dagana hmmmm...

Brjálað að gera  

Nú er allt fullt að gera í skólanum. Fullt af verkefnum framundan og mar þarf lengri sólarhring ég meina það. En sonur minn er orðin frískur 7.9.13! Það er fyrir mestu að heilsan sé í lagi. Er það ekki annars??

20.10.03

Veikindi veikindi og aftur veikindi!! 

Sæl Öllsömul

Ég er enn á lífi þó svo að ég er ekki búin að vera dugleg að blogga. Þannig er mál með vexti að sonur minn er búin að vera meira og minna veikur síðan 1, oktober. Kommon hvað má leggja á lítil kríli?? ég bara spyr. En þetta stendur allt til bóta í næstu viku því þá fær hann ný rör og þá vonandi hressist hann og ég get farið að stunda skólann og öll verkefnin sem honum fylgja.
Bless í bili

This page is powered by Blogger. Isn't yours?